Um okkur
Fyrirtækið býr yfir miklum mannauð en hjá fyrirtækinu starfa um 15 manns, allir með mikla starfsreynslu. Á meðal starfsmanna eru byggingafræðingur, málarameistari, múrarameistarar og húsasmíðameistari. Hluti starfsmanna hefur sótt námskeið erlendis í inndælingum. Þá búa stjórnendur yfir mikilli reynslu og þekkingu á sviði fasteignaviðhalds og fyrirtækjareksturs.
Starfsfólk
Stjórnendur og skrifstofustarfsmenn

Sagan
Fyrirtækið var stofnað árið 1996 af Hólmsteini Pjeturssyni múrarameistara. Fyrirtækið sérhæfði sig í hvers kyns múrverkefnum, lekaviðgerðum og öðru fasteignaviðhaldi. Lýður Pétursson bættist við eigendateymið fljótlega og tók við rekstrinum eftir fráfall Hólmsteins Pjeturssonar árið 2011. Frá þeim tíma hefur það verið starfrækt sem Lýður Pétursson ehf.
Í ársbyrjun 2022 ákvað Lýður að minnka við sig og selja fyrirtækið. Sá aðili sem varð fyrir valinu til þess að taka við keflinu var Sigurgísli Gíslason, byggingafræðingur og málarameistari en þeir höfðu unnið náið saman um nokkurra ára skeið. Sigurgísli býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu á sviði fasteignaviðhalds auk þess sem hann á og rekur málningarþjónustuna Verkferil - þekkingu ehf. Fyrirtækin rekur hann ásamt eiginkonu sinni, Írisi Önnu Skúladóttur og Lýður Pétursson er áfram starfandi hjá fyrirtækinu og sinnir hinum ýmsu verkefnum.









